laugardagur, janúar 28, 2006

Komst að því í gær að dagkremið sem ég hef notað undanfarin tvö ár er ekki dagkrem heldur húð-endurnýjunarkrem. Maður á sem sagt að setja það á sig á kvöldin áður en maður fer að sofa og þá endurnýjast húðin á meðan maður sefur. Síðan á morgnana á að þvo það af og setja á sig dagkrem. Við þau ykkar sem ég hef átt samskipti við sl. tvö ár vil ég biðjast afsökunar á öllum hamskiptunum sem þið hafið án efa orðið vitni að.

með bestu kveðju

föstudagur, janúar 27, 2006

Rétt eftir að ég var búin að svara kommentinu hérna að neðan þar sem ég dásama role-playing nörda barst mér tölvupóstur þar sem það stóð m.a..

"We are pleased to inform that your paper has been accepted to seminar on Playing Roles."

Þannig að ég fer sem sagt til Finlands í lok mars og spjalla við aðra sem eru að rannsaka role-playing og segi þeim frá minni rannsókn! Sjá hér. Svo ætla þau líka að borga fyrir mig flugfarið...haldiðþaðsé?

Skelli inn tillögunni á spider-woman síðuna brátt, ásamt fyrirlestrum sem ég hef haldið svo allir geti verið með í role-playing gleðinni sem ríkir á heimilinu.

mánudagur, janúar 23, 2006



Katla

Já og svo bætti ég við tenglalistann henni Syngibjörgu frænku og tveimur dagbókarriturum sem ég hef lesið undanfarið... vær sa god :D
Voða sybbin þar sem ég var að spila tölvuleik fram á nótt og mikið drama var í gangi....geisp... en allavega þá er Vivianne farin í útlegð og hörkutöffara konan Katla tekin við. Skelli inn mynd af henni við tækifæri.

Har det bra

sunnudagur, janúar 22, 2006

Eitt netpróf til að hressa upp á daginn. Niðurstöðurnar koma kannski ekki sérstaklega á óvart. Gaman að sjá að allar listgreinarnar raðast neðst, ég hélt til dæmis að ég dansaði rosalega vel - en það er kannski af því ég dansa með lokuð augun. Gott að ég hélt ekki áfram á listabrautinn sem ég datt einu sinni inn á á mínum sokkabandsárum.

Þetta eru eiginlega sömu niðurstöður og ég fékk í einhverju áhugasviðsprófi sem ég tók í Háskólanum nema að hérna vantar að minnast á hæfileika mína til að vinna við garðyrkju.

You scored as Sociology. You should be a Sociology major!

Sociology

100%

Engineering

92%

Journalism

75%

Anthropology

67%

Linguistics

67%

Psychology

67%

English

50%

Philosophy

42%

Mathematics

42%

Chemistry

25%

Theater

25%

Biology

25%

Art

8%

Dance

8%

What is your Perfect Major? (PLEASE RATE ME!!<3)
created with QuizFarm.com

fimmtudagur, janúar 19, 2006

Í gær varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að horfa á Party 101 í vefsjónvarpinu Sirkus og fyrir ykkur sem misstuð af þá birtist hérna megin inntak þáttarins.


Inni á Hverfisbarnum

Sena 1
Brynja: “Hæ stelpur/strákar... hvað segiði... eruð þið ekki í stuði?”
Stelpur/strákar: “Jú!... geðveiku stuði”
Brynja: “Hvernig er kvöldið búið að vera?”
Stelpur/strákar: “Bara rosa skemmtilegt... geðveikt stuð!”

Ímyndið ykkur svo að sena 1 sé endurtekin nógu oft til að fylla upp í hálftímaþátt... aðeins er skipt út stelpum/strákum.

þriðjudagur, janúar 17, 2006



Jæja hérna er ný viðureign fyrir Erlu :D En ég vil taka það fram af gefnu tilefni að um er að ræða viðureign persónanna - ekki leikkvenna. (Þannig það á ekkert að blanda Angelinu Jolie í þetta mál og skrifa löng comment um að hún megi ekki slást þar sem hún er ólétt - ha Erla? ;)

Ég á sko að vera að skrifa fyrirlestur sem ég er að fara að flytja á morgun en mun fresta því fram í rauðan dauðann eða þangað til í kvöld þegar ég byrja að æpa af stressi.

föstudagur, janúar 13, 2006


Hvor vinnur? Þessari spurningu er velt upp hér . Ég er búin að flissa yfir þessari síðu í allan dag enda með mjög þroskaða kímnigáfu. Vildi bara deila þessu með ykkur.

(fyrir þau ykkar sem ekki þekkið konurnar, vinsamlega farið og lesið eitthvað annað blogg;)
"Mamma áttu álfpappír?" var setning dagsins í gær...

miðvikudagur, janúar 11, 2006

Stundum eru demantaskórnir mínir aðeins of þröngir....
Ég þyrfti endilega að hitta Robbie Willams. Það ætti að vera auðvelt þar sem við búum í sama landinu ha?

þriðjudagur, janúar 10, 2006

Í dag í fyrsta sinn síðan ég var lítil fílaði ég mig sem litla konu. Ég er um 172 cm á hæð og er mjög oft í háhæluðum stígvélum. Samt þurfti ég að biðja um aðstoð í tölvuleikjabúðinni GAME þar sem ég náði ekki upp í efstu hilluna. Leikurinn sem ég var að velja var ekki þess legur að þurfa að vera í efstu hillu og meira að segja Manhunt var í næstu hillu fyrir neðan. Ég var frekar kindarleg þegar ungi hávaxni maðurinn fór og sótti leikinn fyrir mig og tók eftir að allir afgreiðslumennirnir voru mjög hávaxnir. Þannig að ég get sem sagt ekki huggað mig við það lengur að ég fái starf þar að námi loknu.


updeit: hitinn er kominn í lag og ég keypti C-vítamín þannig að samlíkingin hér fyrir neðan verður sífellt fjarlægri

mánudagur, janúar 09, 2006

Í dag á ég engan pening og hitinn í íbúðinni er bilaður. Þess vegna sit ég hér loppin á höndunum og vélrita þessar línur. Nú vantar bara að ég fái skyrbjúg og fari á langt fyllerí og þá er ég næstum eins ekta íslenskur fræðimaður í Kaupmannahöfn í gamla daga.

laugardagur, janúar 07, 2006

Jæja þá erum við komnar aftur til Englandsins kátar og glaðar eftir góð jól og áramót í faðmi fjöskyldu og vina á Íslandi. Þetta voru góð jól og áramót og gaman að hitta alla. Ég lá nú mest í lazy boy stólnum og borðaði góðan mat, en tókst aðeins að standa upp til að hitta alla... voða gaman að hitta ykkur öll og þau ykkar sem ég hitti ekki þá segi ég bara gleðilegt nýtt ár og sjáumst næst þegar ég dett inn á skerið.

Ég hélt fyrirlestur á vegum Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum þann 5 janúar sem bar titilinn Veröld Vivianne: kyn í fjölþátttökuleikjum og loksins fengu fleiri að kynnast Vivianne og nördalífinu mínu sem ég flaggaði óspart. Kona á bara að vera stolt yfir að vera nörd inn við beinið.

Fyrr um daginn var ég í útvarpinu í samfélaginu í nærmynd þar sem ég sagði stuttlega frá efni fyrirlestursins. Ef þið sem misstuð af fyrirlestrinum viljið hlusta fylgið þá linknum og veljið samfélagið í nærmynd og ég er aftast í þættinum.

Góðar stundir að sinni og takk allesammen fyrir góðar stundir á Íslandinu

kv

spider-woman aka Vivianne aka Þórdís