þriðjudagur, janúar 17, 2006



Jæja hérna er ný viðureign fyrir Erlu :D En ég vil taka það fram af gefnu tilefni að um er að ræða viðureign persónanna - ekki leikkvenna. (Þannig það á ekkert að blanda Angelinu Jolie í þetta mál og skrifa löng comment um að hún megi ekki slást þar sem hún er ólétt - ha Erla? ;)

Ég á sko að vera að skrifa fyrirlestur sem ég er að fara að flytja á morgun en mun fresta því fram í rauðan dauðann eða þangað til í kvöld þegar ég byrja að æpa af stressi.

1 Comments:

Blogger Erla said...

Þessi er soldið erfiðari... er aðdáandi hvorugrar...
það er samt hægt að byggja svarið á einni einfaldri staðreynd... Lara Croft er aðalhetja en matrix gellan er aukahetja... bara þess vegna eru t.d. meiri líkur á því að matrix gellan tapi og deyi eins og aukahetjur geta oft gert en kemur aldrei fyrir aðalhetjur...
p.s. var mitt byggist þá eingöngu á þeim persónum sem þær leika en ekki leikkonunum... enda myndi angeline jolie ólétt eða ekki ólétt alltaf tapa þeirri baráttu þar sem ég er sárreið út hana og Pitt að hafa sært hana Jennifer persónulega vinkonu mína :-(
P.s. takk fyrir að hugsa til mín og koma með meira svona... er ekki hægt að leggja stund á svona pælingar í háskóla... ég hef sennilega verið á rangri hillu fram að þessu :-/

1:18 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home