þriðjudagur, apríl 01, 2003

Vá hvað það er langt síðan ég hef bloggað...þetta er ekki nógu gott. Er búin að eiga ágætisdag fyrir utan mikla svengd í allan dag...held stundum að maður sé e-ð geðveikur..ég meina ég var að klára að borða og er strax orðin svöng. Gærdagurinn fór í svona smá peningaþunglyndi...ég er farin að halda að ég muni aldrei eignast pening og muni allt mitt líf vera að ströglast...held það verði e-ð mjög róttækt að fara að gerast í mínum fjármálum!!
Ég átti mjög góða helgi í Colchester hjá honum Atla og ég get nú svekkt ykkur soldið með því að segja ykkur frá því að ég var í sólbaði á sunnudaginn....maður trítlaði bara um á hlýrabolnum hihihihi rosalega mikil gleði og við Atli ræddum mikið um hvað þetta væri nú æðislegt...svona sérstaklega þar sem það var snjókoma á Fróni hahahhaha
Á laugardaginn vöknuðum við skötuhjúin alveg galvösk og ákváðum að skella okkur í skvass...við kunnum nú ekki alveg reglurnar en það reddaðist alveg.....Allavega þá gekk þetta mjög vel og mikil gleði ríkti á skvassvellinum....Anna Karen var sérstaklega ánægð þar sem hún var með nokkra yfirburði 17 - 15.......Anyhow þá var Atli að fara að slá boltann og ég sá út undan mér að hann var með svaka sveiflu en........Atli hitti s.s ekki boltann heldur þrumaði spaðanum í ennið á mér!!!! Og ennið bólgnaði strax og Atli var alveg í mínus...og fór með mig heim og þar lá ég með klaka á enninu í klukkutíma og allt varð miklu betra og kúlan hjaðnaði. Það er ekki búið að plana næstu skvassferð :)
Jæja krúttin mín
Þar til síðar...Anna Karen

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home