þriðjudagur, febrúar 14, 2006

Ekki dugar að hafa færslu efst um eitthvað sem maður ætlar kannski að gera... er það nokkuð? Hér á eftir koma helstu fréttir í skeytaformi:

Komst ekki til London... var lasin og fúl í staðinn.

Mýslan missti fyrstu tönnina við mikinn fögnuð viðstaddra

Mýslan og Jozeph fóru til Hull og á meðan sit ég ein og sauma

Horfði á Alien: Resurrection... hún finnst mér allra síst af Alien myndunum. Er mjög hrifin af þremur fyrstu... ef ykkur langar að gefa mér þær í afmælisgjöf þá er það bara fínt!

Er að vinna í Finlandsgreininni ógurlegu.

Fór út að borða í gær og fékk hálfhráan kjúkling... er samt ekki dáin...ennþá...

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

En kannski svolítið fiðruð? - vildi að þú værir hér - vantar einhvern til að eiga með mér góða stund við uppáhalds iðjuna; að baktala, gagnrýna og hneikslast :D

1:35 e.h.  
Blogger Syngibjörg said...

Iss, maður á bara að blogga um það sem mann langar til.
Þetta nú mans eigið blogg.

12:02 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home