laugardagur, september 17, 2005

Klukkan 20 mín í átta í morgun byrjuðu menn að saga í götuna hérna fyrir utan gluggann og má ég minna á að í dag er laugardagur þegar ALLIR vilja sofa út. Ég vaknaði upp með andfælum og tautaði fyrir munni mér "you have got to be fucking kidding me" (veit ekki alveg hvaðan það kom?!?) og rankaði ekki við mér fyrr en fyrir framan gluggann í forstofunni þar sem ég stóð úfinn og reyndi að senda eldingar með augnarráðinu í mennina fyrir utan. Þær virðast hafa brotnað á rúðunni og þeir héldu glaðir í bragði áfram með sögina sína. Ég rölti aftur inn í rúm og nokkrum mínútum síðar heyrðust öskur og óhljóð út í götu og ég sem er rosa forvitin stóðst ekki freistinguna og kom mér aftur fram í forstofu og viti menn... þar var kominn afskaplega reiður maður sem var sko fucking búin að fá nóg af þessum fucking hávaða og sérstaklega á fucking laugardegi og hann ætlaði sko fucking að hringja í yfirmenn þeirra og síðan eitthvað fucking þetta og hitt og svo æddi hann aftur inn. Það heyrðist ekki meira í götuviðgerðarmönnunum fyrr en um tíuleytið aftur :D

spider-woman.... you better fucking believe it!

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ég hélt að þetta "fucking" væri bara notað í henni Ameríku, hef reyndar hugsað um það hvernig hefi farið fyrir Könum, væri "fucking" ekki til, sem sagt hvað þeir hefðu notað í staðinn. Dettur þér nokkuð í hug. Hvern andsk. á það líka að þýða að vera með svona barsmíðar fyrir kl. 8 að morgni laugardags.
"fucking them bara" Bið að heilsa.
Kv. frænka gamla í Koti.

1:56 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home