þriðjudagur, september 27, 2005

Vei!!! Við fengum miða á Sigur Rós í Brixton Academy í nóvember :D Og nú verða engin veikindi látin stöðva gleðina. Ég er enn að jafna mig á að hafa misst af Nick Cave á síðasta ári. *snökt*

Annað er í fréttum helst að við mýsla komum á klakann 16.desember og verðum til 6.janúar. Við verðum svo í kolaportinu 17. og 18. desember að selja eðal breska antík þannig geymið að kaupa jólagjafirnar þangað til þá.

jamm

2 Comments:

Blogger Fláráður said...

Má ég eiga von á að geta verslað royalbrullaupsbolla?

1:59 e.h.  
Blogger londonbaby said...

Ég skal hafa augun opin. Það hefur reyndar verið fátt um fína drætti hérna í Guildford því hér eru allir svo ríkir að charity búðir eiga frekar erfitt uppdráttar.

sjáumst glöð og kát yfir öli þórður

kv

6:20 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home