mánudagur, september 25, 2006

Jæja ég held það sé best að skrifa upp þessa bloggfærslu sem ég er búin að ganga með í maganum svo lengi en hef ekki nennt að setjast yfir. Ég hef því látið tveimur mönnum hjá Guardian að tjá hugsanir mínar um þetta "hollt fæði og hreyfing fyrir alla" málefni. Það var kannski ekki sniðugt til lengdar því núna lít ég út eins og kona sem vill ekki að fólk eigi gott líf fyrir höndum.

En fyrir mér snýst þetta ekkert um rétt og rangt eða að vera með Jamie Oliver eða á móti. Fyrir mér snýst þetta um að skoða fleiri hliðar á þessum málum en " ef þú gefur barninu þínu franskar og gos þykir þér ekki vænt um það og ert jafnvel að drepa það hægt og sígandi" skilaboðin sem bylja á manni úr öllum áttum í fjölmiðlum hérna. (Sbr. þátt sem er sýndur hérna og heitir "Honey we are killing the kids.")

Ég held að þetta sé aðeins flóknara mál sem þarfnast flóknari lausnar en bara að segja "Farðu út í búð og keyptu lífrænt ræktaðan kjúkling og kóríander og þá verður allt betra". Sérstaklega í eins stigskiptu og flóknu samfélagi og Bretland er. Það vantar í fyrsta lagi allan skilning á því hvernig fólk hugsar um mat og eldamennsku - hvorttveggja er félagslegt og menningarlegt fyrirbæri og er ekki hægt, að mínu viti, að smætta niður í eingöngu kaloríur og snefilefni eða good vs. evil. Því þótt sumir sjái mat á þennan hátt eru aðrir sem sjá mat sem eitthvað sem fyllir magann, aðrir sjá mat sem eitthvað sem á að njóta, aðrir sjá mat sem eitthvað sem maður þarf að borða til að lifa af og enn aðrir sjá mat sem huggun og finnst gott að borða sætt .

Það vantar líka allan skilning á því að óhollur matur er mun ódýrari en hollur matur oft og tíðum og sumt fólk reynir að kaupa sem ódýrastan mat sem fyllir hvað lengst þ.e. franskar kartöflur og hvítt brauð. Aðgangur að hollum mat er ekki fyrir hendi allsstaðar og stundum þarf að ferðast til að komast í búð sem selur annað en bara frosnar matvörur og eitthvað í pakka - þetta held ég að sé oft staðreynd á fátækari svæðum.

Þetta er allavega það sem ég hef kynnst eftir að hafa búið hérna og haft reynslu af bæði "eldamennsku af gamla enska skólanum" þ.e. allt frosið eða úr pakka og síðan eldamennsku af Jamie Oliver skólanum.

Síðan má líka benda á að óhollur matur tekur mun sneggri tíma í eldun en hollur matur og mörgu fólki finnst hreinlega það ekki hafa tíma til að elda "from scratch". Mun auðveldara að skella bara pizzu í ofninn heldur en að skera niður óteljandi hráefni og sjóða og steikja (veit ekki hvort það má steikja eitthvað lengur samt).

Það eru þessi viðhorf sem hafa þarf í huga ef koma á einhverri hugarfarsbreytingu hjá fólki - en ekki bara messa yfir því eins og það sé heimskt.

Það vantar líka algerlega þolinmæði og skilning á því að matarvenjur sem hafa verið við lýði í áratugi hverfa ekki eins og dögg fyrir sólu á nokkrum mánuðum eins og Jamie Oliver virðist halda. Og þegar allt gengur ekki upp um leið og honum dettur í hug þá verður hann fúll og kallar foreldra heimska. Eins með litlu grýluna sem er með þáttinn "You are what you eat" þar sem hún setur sig á einhvern stall og messar yfir fólkinu á meðan hún skoðar úr því hægðirnar.
Þess vegna finnst mér hressandi að fólk skrifi ekki bara hallelujah greinar um þetta mál svona aðeins til að opna umræðuna sem er orðin, að mínu mati, mjög fasísk á köflum.

Ég ætla mér ekki að verða þekkt fyrir að halda uppi merkjum óhollra lifnaðarhátta en mér finnst að oft megi aðeins staldra við og hugsa aðeins í staðinn fyrir að hlusta alltaf á einhverja sjálfskipaða sérfræðinga sem messa yfir lýðnum á meðan þeir selja honum allskonar dótarí.


ps. ég er ekkert pirruð heldur :D ... og Rannveig takk fyrir kommentið... alltaf gaman að fá hressandi komment...ertu flutt heim alveg núna?

12 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Snilldar pistill hjá þér frænka. Finnst sjálfri mjög gaman að spá í matar- menningu/ómenningu hjá fólki og sjá hversu misjafna afstöðu til matar fólk hefur. Sumum finnst gaman að elda og borða.. öðrum ekki, og bara allt í lagi með það.
kveðja
Marta (að borða grænmetissúpu, made from scratch)
(p.s. sem er stundum þýtt yfir á ástkæra ylhýra "búið til úr drasli".. hahaha)

1:30 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Er sammála þér að vanda- þetta heilsufríkarpakk sem tröllríður öllu er óþolandi - maður étur það sem mann langar í, þykir gott og hefur efni á að kaupa - sama hvað allir jamie oliverar og örmjóar-heilsu-nornir messa yfir manni.

6:56 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Er sammála að allur fasismi er ekki af hinu góða og er persónulega langt frá því að vera heilsufrík og sammála lang flestu sem þú sagðir en er samt ennþá í liði með J.O.

Það hlýtur að teljast af hinu góða, einmitt vegna þess að það er ekki á allra færi í Bretlandi að kaupa hollan mat (eins og þú bendir réttilega á), að allir krakkar fái þá aðgang að hollum mat í sínu skólamötuneyti. Ég bara sé hreinlega ekki hvað er að þessari herferð hans J.O.

Allur heilsufasismi fer líka jafn mikið í taugarnar á mér eins og öðrum macro/micro/biotic/organic bla bla bla en mér finnst Jamie Oliver bara ekki vera gott dæmi um heilsufasisma hjá þessum greinahöfundi í The Guardian.

p.s hélt því aldrei fram að þú værir talsmaður óhollrar fæðu en er bara sammála honum Jamie "mínum" og finnst bara ekkert að því að reyna að innleiða nýjan hugsunarhátt í Bretlandi burt séð frá því hversu gamalt, formfast og stéttskipt þetta samfélag er.

3:56 e.h.  
Blogger londonbaby said...

Ég ekkert á móti því að krakkar fái hollan mat í skólanum eins og Jamie "þinn" (veit Bergur af þessu?) hefur nú komið á að einhverju leyti. Og ekkert á móti þessarri herferð hans - en að kalla foreldra heimska sem gefa barninu sínu gos - það fer ég í taugarnar á mér - og hann ætti að halda þessum hroka fyrir sig, því ég sé bara ekki hverju þetta á að koma til leiðar. Hann þarf nú einusinni á þessum foreldrum að halda ef herferðin á að ganga upp!

Eins fer í taugarnar á mér þessi vanskilningur hans og fleiri heilsufasismafrömuða á því að allar breytingar taka tíma og það þýðir ekkert að verða pirraður ef allt gengur ekki upp í sjónvarpsþættinum sem maður er búin að selja á channel4 og að enginn hleypur til og kaupir fullt af lífrænum sætum kartöflum í Sainsburys eftir alla auglýsingaherferðina sem að maður er búinn að standa í.

Síðan þetta píslarvættisröfl sem hann dettur líka stundum inn í en ég nenni ekki að röfla yfir því hér.

En herferðin sem slík er alveg góð og gild - ég er bara að láta aðferðafræðina eitthvað standa eitthvað í mér.

Þess vegna get ég eiginlega ekki alveg gengið í liðið hans - veit heldur ekki hvort mér yrði hleypt inn því það var kók með matnum í gær ;)

4:27 e.h.  
Blogger londonbaby said...

Og þið hin...takk líka fyrir kommentin...voða gaman að heyra frá ykkur...vissi ekki að þú marta værir lesandi hérna...bið að heilsa í bæinn þinn...vona að súpan hafi smakkast vel :)

kv

Þórdis

4:57 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Mér finnst sætu lífrænu kartöflurnar í Sainburys mjög góðar :D

5:14 e.h.  
Blogger londonbaby said...

Ég hef bara aldrei eldað svona sætar kartöflur... en í dag á biðstofu læknisins fann ég einmitt sainsbury´s magazine með fullt af uppskriftum frá Jamie "þínum" af allskonar réttum með sætum kartöflum. Skrifaði niður tvær og mun elda von bráðar sætukartöflusúpu annars vegar og hins vegar sætukartöflumús... veit samt ekki með hverju hún passar... einhverjar hugmyndir???

5:35 e.h.  
Blogger Syngibjörg said...

Hef miklar og margar skoðanir á þessu öllu saman og þú átt hrós skilið fyrir færsluna.
Mínniðurstaða er hinsvegar þessi:
hvern og einn hlýtur að finns það sem honum hentar best, vilji maður hráfæði þá gjörsvovel en vilji maður ruslfæði nú, gjörsvovellíka.
Það er svo val hvers og eins hvernig hann hugar að heilsunni því við lifum ekki fyrir aðra, bara fyrir okkur sjálf.
Ábyrgð okkar sem foreldrar er mikil veit það en það er líka allt í lagi að láta hrista upp í sér með J.O. Og fyrir ofnæmisgemsa eins og mig varð ég að finna út hvaða fæðu ég gæti borðað án þess að liggja veik í rúminu.
Æi elskurnar mínar, tökum þessu létt og fáum okkur pizzu og rauðvín annað veifið, annars er lífið ekkert skemmtilegt.

8:39 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég hef verið að fylgjast með þessum umræðum og haft gaman að. Syngibjörg skrifaði eiginlega akkúrat það sem ég ætlaði að skrifa. Það er val hvers og eins hvernig hann lifir lífinu en við sem erum foreldrar verðum að passa að börnin fái þau næringarefni sem þau þarfnast. Ég tel mig elda frekar hollan mat en leyfi mér að hafa eitthvað óhollt inn á milli. Í kvöld ætla ég t.d. að kíkja í Jamie bókina mína og hafa rauðvín með. Síðan verður örugglega gos og nammi í kvöld (það er nú einu sinni föstudagur ;)
Kv
Sólveig

9:19 f.h.  
Blogger londonbaby said...

Ji!... ég hef aldrei fengið svona mörg komment...*klappklappklapp* En hvað með sætu kartöflumúsina? Engar uppástungur um hvað á að hafa með henni?

kv

Þórdís

9:26 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Við Dísa skvísa erum ekkert að rífast, bara rökræða.

Svo mæli ég með lambakótellettum (helst organískar og "free range") með sætri kartöflumús, mjög svo ljúffengt...

Svo var þetta nú bara smá grín með að J.O. væri "minn" , mér fannst bara svo íslenskt að segja það því allir eru "okkar" á Íslandi eins og t.d Magni "okkar" í Rock Star SuperNova og strákarnir "okkar" í landsliðinu og svo mætti lengi telja. En nóg um það nú er ég hætt þessari umræðu og ætla að snúa mér að vinnunni.

Bless í bili

9:31 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég sauð bara sætu kartöflurnar í gær. Mér finnst þær góðar þannig :)

Kveðja
Sólveig

7:45 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home