þriðjudagur, nóvember 30, 2004

Jæja loksins hafa leiðbeiningarnar komist til skila og núna bíða mín voða mörg comment. Gaman að sjá alla ættingjana og vinina hópast inn á síðuna - verið öll velkomin skinnin mín.

Varðandi spurninguna um hvort við búum í öllu húsinu vil ég bara segja "Hnuss... ég set sko ekkert hring um minn glugga því í Netheimum 101 lærir maður að maður á ekki að skilja eftir persónulegar upplýsingar um hvar maður á heima og svona því þá hópast perrarnir að..... þannig að núna hef ég gert þeim mun erfiðara fyrir. Þeir þurfa núna fyrst að finna húsið og síðan að hringja á allar bjöllurnar til að finna mig" MUHAHHAAHAH...


kv

spider-woman


1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ. hér kemur gamla í Koti. Ætlar að óska þér góðrar og skemmtilegrar reisu til USA. Ef þú hitti president Bush, klíptu þá í rassinn á honum. Annars er allt gott héðan. Vorum á Akureyri um síðustu helgi,hengdum upp jólaeldhúsgardínur, fórum í bæinn að kaupa jólagjafir, borðuðum mikið o.s.frv. Sem sagt allt gott í dag.
Jólaundirbúningur hafinn, bakstur á morgun, bara smávegis. Bestu kveðjur til ykkar allra.
Inga Lóa.

2:26 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home