miðvikudagur, nóvember 10, 2004

Fliss fliss

Jæja best að rífa sig upp úr þunglyndinu fyrst maður er komin á stera og orðin voða hress og kát. Ég rakst á síðu þar sem verið var að rifja upp brandara af ákveðinni tegund sem voru voða vinsælir fyrir nokkrum árum. Ég læt mér nægja að setja hér inn nokkra sem ég er búin að vera að flissa yfir í allan dag. Svona er að vera svona veik og einangruð. Hér koma þeir bestu:

Öll börnin horfðu á kirkjuna brenna, nema Hermann. Það var verið að fermann.

Allir krakkarnir stoppuð við hengiflugið, nema Tindur. Hann var blindur.

Allir krakkarnir voru í Ku klux klan nema Bjartur - hann var svartur.

Alli krakkarnir fengu vasapening nema Þóra, hún var hóra

Nú hefur mér tekist að dónaleg við kristna, blinda, svarta og vændiskonur og flissa mikið í leiðinni. Ansi er maður illa innrættur. Gott að enginn les þetta blogg kannski.

kv

spider-woman á sterum

ps takk fyrir stuðningin lillesös, hlakka til að sjá þig :D

2 Comments:

Blogger Ásdís said...

Jebbs, það verður stuð í miami.....:)

11:20 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég flissaði líka hihihi.
Ertu að fara til systu í Miami??
Verð greinilega að fara að spjalla við þig ef
ég hef misst af svona important upplýsingum

8:21 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home