sunnudagur, nóvember 23, 2008

Jæja þá er best að blogga smá. Það er ekkert í sjónvarpinu og ég er búin að lesa dagblaðið spjaldanna á milli, öll blogg og allar fréttasíður þannig að það er fátt eftir í stöðunni en að röfla sjálf á Internetinu. Ég held reyndar að það flækist frekar fáir hérna inn enda fátt verið um fína drætti á þessarri blessuðu síðu.

Það er frekar fátt að frétta héðan úr litla bænum í Surrey verð ég að viðurkenna en ég get glatt ykkur með því að ég og Mýslan verðum á Íslandi 21.des - 6.janúar þannig að ef þið viljið hitta okkur þá endilega látið í ykkur heyra.

Annað sem ég hef verið að dunda mér við undanfarið er að ákveða hvernig húðflúr ég ætla að fá mér og hef ég eytt mörgum stundum á netinu og með hausinn í húðflúr tímaritum. Ég ákvað fyrir löngu að þegar ég lyki við þessa blessuðu ritgerð að þá ætlaði ég að fá mér stórt og flott húðflúr en síðan þegar á hólminn var komið þá gat ég engann veginn ákveðið hvernig það ætti að vera. Ég held að ég sé komin með þetta á hreint núna og þá er að finna góðan húðflúrara og við skötuhjúin ætlum að renna til Brighton til þess.
(Ef þú lest þetta Anna Karen þá hætti ég við að láta gera þetta hér í bæ af því ég sá húðflúr sem hann hafði gert og mér leist ekki nógu vel á þau.)

Hafið það gott litlu mýs

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hlakka til að sjá ykkur um jólin, litlu mýslur. Þangað til, hafið það gott og skemmtilegt og njótið þess að vera til.
ILH.

8:10 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er nú eins gott að þú kannaðir þetta vel! Vona að þú finnir traustan húðflúrara í Brighton :o)
Hlakka til að sjá þig þegar þú kemur heim.
Knús Anna Karen

7:37 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home