Ég sé á teljaranum að allir eru löngu hættir að flækjast hingað sem er fínt því þá get ég röflað eins og vindurinn án þess að neinn taki eftir því.
Í fréttum er þetta helst:
Nýverið bættust við tveir nýir fjölskyldumeðlimir. Þetta eru páfagaukarnir Játvarður og Jens (Edward and James á enskunni) Mun setja inn mynd á næstunni til að sýna hvað þeir eru sætir. Mýslan er afar ánægð með þá og knúsar þá á hverjum degi. Játvarður er blár og Jens er grænn
Ég er byrjuð að kenna, hélt minn fyrsta fyrirlestur fyrir framan 60 nemendur og dó ekki.
Ég fékk mér gat í eyrað, ekki í snepilinn heldur þarna uppi í brjóskið. Hef ekki hugmynd hvað þessi hluti eyrans heitir..blaðka?
Mýslan er náttúrulega löngu byrjuð í skólanum og í fyrstu vikunni gengu í alla bekkina sk. school counsillors, sem eru nokkrir krakkar í efsta bekk sem fá hlutverk nemendafulltrúa. Þau komu í bekkinn hennar Mýslu og einn spurði hana hver væri hennar "role-model" og mýslan hugsaði sig um og svaraði svo Marilyn Manson. *hóst* Ég held að eitthvað hafi farist fyrir að útskýra almennilega hvað role-model er...eða ég vona það allavega...
Jæja þið tvö/tvær/tveir sem ennþá skoða síðuna..ég skal reyna að muna að blogga smá meira

3 Comments:
Guði sé lof og dýrð fyrir að heyra frá þér á ný. Gersaml. ómissandi. Innilega til hamingju með að vera farin að kenna - gangi þér vel.
Bið að heilsa Mýslu og Jó og
lifi nýju fiðruðu fjölsk.-félagarnir sem lengst.
ILH
á dimmum og hundblautum mánudegi.
já tek undir með síðasta manni, ég er nefnilega "hin manneskjan"...
Það eru greinilega fleiri en tveir lesendur......er er aðdáandi :o)
Takk fyrir samveruna um helgina Dísa skvísa. Rosa gott að sækja þig heim :o)
Knús til allra.
Anna Karen
Skrifa ummæli
<< Home