fimmtudagur, nóvember 10, 2005

Verst að missa af svona spennandi þáttum eins og kastljósinu. Eftir að hafa röflast á milli íslenskra bloggsíða hef ég tekið eftir því að kona sem spjallar við stofnfrumur hefur tekist að æsa lýðinn upp. Fyndast er þó að einhver læknir hafi verið dreginn í að rökræða þetta við konuna.
Svoltið svona eins og að leiða saman tvo stjörnuspekinga, einn sem trúir á kínverska stjörnuspeki og hinn sem trúir á þessa "vestrænu" stjörnuspeki og láta þá rökræða um hvort að ákveðin manneskja er krabbi eða tígur.

ps. konan með litla andlitið sem heldur því fram að fræ séu gott snakk er fáviti!!!

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Geturðu ekki lokað fyrir þennan anonymous? Hvað er hann að meina - road construction safety equipment?? Hvað hefur það með fræ og stofnfrumur að gera? eða litlar voða reiðar konur og ennþá reiðari lækna sem sitja og skilja ekki litla reiðar konur sem eiga í innilegu sambandi við kjarnnan í sjálfum sér?

1:10 e.h.  
Blogger londonbaby said...

ég reyndi að loka á anónímus en þá gat día Aust ekki sett inn comment þannig að....

4:44 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home