föstudagur, apríl 25, 2003

Jæja loksins kominn föstudaskvöld...samt engin helgarplön...ég meina Þórdís er á Íslandi og Atli er í Colchester að læra þ.a ég hitti hann ekki um helgina :(
Hey í vinnunni í dag sagði hann Gerard vinnufélagi minn mér að ég klæddi mig alltaf svo töff og konan í mótökunni sagði að ég liti mjög vel út rauðu (var sko í rauðri peysu) og svo spurði hún mig hvernig ég færi að því að vera svona grönn....ekki amalegt að fá svona hrós...mjög gott fyrir litla hjartað. Og ég sem er alltaf að röfla um að ég þurfi að missa nokkur kíló....as if!! Málið er nefnilega að Karenbeib og Spider-woman eru partners in crimes varðandi að svindla og borða sælgæti....held við ættum að fara að stefna að því að verða svona heilsupartners...reyna að koma því að :)
Í kvöld ætla ég að koma mér vel fyrir í sófanum og fylgjast með vinum mínum í friends og einnig þeim Will og Grace þ.a það verður nóg að gera...keypti mér meira að segja Haagen-dazs ís til að japla á hihihi

Hafið það öll sem best

Anna Karen

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home