miðvikudagur, október 23, 2002

hmmm taka 2.... reyni alveg ad blota ekki... tvhi allt i einu hvarf allt sem eg var buin ad skrifa, thad var rosalega snidugt og skemmtilegt og nuna er eg buin ad gleyma thvi ollu.....

Eg sit herna i tolvuveri i skolanum blogga thetta blogg dagsins. Tolvurnar herna eru dalitid ancient og nettengingin er voda haeg. Thad getur verid dalitid pirrandi fyrir manneskju sem er von thvi ad hafa ADSL tengingu thar sem allt gerist a hrada ljossins! En best er bara ad nota bidtimann i eitthvad annad...t.d ad fara a klosettid, kaupa ser samloku eda spjall. Eg er buin ad eignast nyja vinkonu herna i skolanum, hun heitir Nassim og er fra Iran. Hun byrjadi svolitid seint og vid hofum eytt dalitlum tima i dag til ad kenna henni a bokasafnid og svo erum vid ad fara ad gera verkefni saman. Hun talar ekki mikla ensku thannig ad vid erum dalitid i ad misskilja hvor adra en thetta hlytur ad bjargast, eg vona thad allavega thvi vid eigum ad halda saman fyrirlestur eftir nokkrar vikur. Karenbeib a ammaeli a morgun og tha er stefnan a ad hafa sushi i Tanglewood Close ef henni tekst ad finna sushi hrisgrjon, wasabi og edik. Thad er nefnilega ekki svo mikil sushi menning herna, en thad er haegt ad kaupa allt sem er kinverskt, pakistanskt, indverskt osfrv, i matargerd en japanarnir hafa eitthvad ordid utundan i thessu ollu saman. Vid erum voda anaegd oll saman i Uxbridge thvi thad er alveg fyrirtaksbaer og rett i thessu fekk eg sms fra Karenbeib um ad hun hefdi fundid Sushi rice i sainsburys. Thad faest abyggilega allt herna ef madur bara leitar. Asa tasa kemur a sunnudaginn og nu fer ad hitna i kolunum og nu verda Bretar ad fara ad vara sig thegar bestablom leggur land undir fot. Hun tjadi mer ad hun hefdi laert nokkur ny ord eins og td sorry og thank you. Svo kann hun ad segja My name is Asa and I am four years old. Eg hef mikla tru a thvi ad thetta eigi allt eftir ad ganga eins og i sogu og laet eg ykkur, lesendur godir, vita hvernig thetta fer. Hafid thad sem best blomin min og gangi ykkur allt i haginn

Spider-Woman

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home